Löggiltur Sjúkranuddari,(hætt að nudda og búin að loka stofunni) Klínískur dáleiðari og Stjörnuspekingur🌹Ætla að bjóða uppá djúpheilun, (sambland af dáleiðslu og heilun) einnig lestur í stjörnukort og spil. Ég verð með einkatíma í: SJÚKRANUDDI, HEILUNARNUDDI (lestur í stjörnurog spil, nudd,heilun), DJÚPHEILUN (sambland af dáleiðslu, heilun og fyrrilífsheilun), DÁLEIÐSLU og LESTRI ÚR STJÖRNUKORTI með RÁÐGJÖF. LÍFSÝNARFASTAN
Ég kem til með að leiða Lífsýnarföstuna vorið 2022 eins og undanfarin ár og ætlum við að byrja þriðjudaginn 19 apríl kl 17.30 með kynningu í Zontahúsinu Aðalstræti 54 Fastan byrjar svo sunnudaginn 24 apríl kl 11 að Helgafelli á Svalbarðsströnd. Lífsýnarfastan er yndislegt þriggja vikna ritúal þar sem lögð er áhersla á hreint mataræði sem hreinsar og styrkir líkamann og hugleiðslur og ljósæfingar sem hreinsa tilfinningar og huga. ORKUSTÖÐVAR MANNSINS
Orkustöðvanámskeið I og II
Þegar við hugleiðum inná orkustöðvar líkamans er markmiðið að dýpka tenginguna milli persónu, sálar og undirvitundar, og gera þannig meðvitaða þá þætti í fari okkar sem við erum ómeðvituð um, bæði ljós og skugga. Við viljum draga fram ljósið í sálinni, efla okkar innri styrk og sjálfstraust til að þeir hæfileikar sem við komum með inn í þetta líf fái að njóta sín. Við þurfum líka að verða meðvituð um þætti í undirvitundinni sem geta hindrað okkur í að gera óskir okkar og drauma að veruleika. Við lærum að þekkja 7 megin orkustöðvarnar, vinnum með tákn í draumum og hugleiðslu, skoðum hugtökin karma, sjálfskarma og fyrri líf og þróun sálarinnar. SPEGLUN STJARNANNA Í SÁLINNI, námskeið í hugleiðslu. Við hugleiðum inná mystík og orku plánetanna og gerum meðvitað hvernig þessi orka speglast í ljósi persónu og sálar rétt eins og orka hinna fornu guða sem pláneturnar eru nefndar eftir. Ef til vill hefur manneskjan varpað bæði ljósi sálarinnar og sínum mannlega breiskleika yfir á guðina til að geta speglað sig í þeim og lært þannig og þroskast. SJÚKRANUDDSTOFA BJARGAR
HRAFNAGILSSTRÆTI 14
600 AKUREYRI