Viska og gleði

Directions Website Contact the business

Viska og gleði Megi þessi síða næra þig og minna á ljósið sem býr innra með þér.

Hér deili ég hugleiðingum, djúpri speki úr ólíkum áttum, innsæi og persónulegri reynslu á vegferð sálarinnar.

Þetta er rými þar sem gott er að hægja á, hlusta inn á við og finna það sem tengir þig við þinn eigin innri kjarna – til að muna hver þú ert.

29/10/2026

Allt er lifandi – allt er ást

Hver erum við mannfólkið í raun og veru? Ég held að það geti enginn svarað því fullkomlega, enda held ég að enginn nái nokkurn tímann utan um þá heildarmynd. Við fáum kannski örlítið brot af því hver við raunverulega erum, en við fáum ekki heildarmyndina, enda er hún svo umfangsmikil að við myndum alveg týna okkur í henni. Það er væntanlega ekki tilgangurinn okkar hér á jörðinni að týnast í því víðfeðmi öllu sem við erum orkulega.

Af og til í gegnum lífið hef ég fengið að kíkja inn um þessa glugga eða einhvers konar anga af því.

Árið 2007 varð ég fyrir nokkurs konar upplifun sem mætti kallast uppljómun eða brot af uppljómun. Ég hafði verið á námskeiði í nokkrar vikur sem var um það að horfast í augu við tilfinningar, en umfram allt að tengjast guðlegu orkunni/alheimsorkunni eða hvað við viljum kalla orkuna sem við raunverulega erum. Þarna vorum við að nota öndun til þess að verða meðvituð um efnislíkamann og hvernig hann er vakinn í gegnum þessa öndun, í gegnum allar orkustöðvarnar og jafnvel allan orkulíkamann.

Í einni hugleiðslunni á þessu námskeiði var ég ein úti í náttúrunni og upplifði allt í einu orkuna sem við raunverulega erum. Ég fann hvernig ALLT er það sem við getum kallað Guð. Allt andar, allt er lifandi, stóllinn sem þú situr á, rúmið sem þú sefur í, allt er þetta lifandi flæðandi orka. Við getum andað inn allri þeirri orku sem við viljum hér og nú, hvar sem við erum. Fjöllin, trén, vatnið, steinarnir, jörðin undir fótunum okkar, við getum andað þessu öllu inn í orkukerfin okkar með því að fókusa á það. Og auðvitað erum við að því alla daga allan ársins hring en bara ekki meðvituð um það.

Það sem gerðist var að ég fann að orkustöðvarnar voru allar lifandi, andandi og þannig var líkaminn minn líka. Allt var orka og allt var lifandi flæðandi, stórkostleg orka. Allt er núna, fyrri líf, nútíð og framtíð. Eins og í einni kúlu frekar en línulega.

Þegar ég kom inn aftur til hópsins sem var á námskeiðinu þá skildi ég eiginlega ekki að það væru ekki allir að upplifa það sama. Öndun í öllu sem er.

Einhver talaði um að hún skildi ekki hvað fólk væri að sækja í fyrri líf þar sem hún fyndi ekki þörf á því að vera að grafast í fortíðinni. Það poppaði út úr mér: „En fyrri líf eru líka núna, akkúrat í augnablikinu eru fyrri lífin þín.“ Ég sá að hún náði þessu ekki alveg en ég lét það vera.

Í framhaldinu var námskeiðinu að ljúka og ég átti að mæta á kvöldvakt í vinnunni. Á leiðinni í vinnuna var ég að sjá allan gróður í nýju ljósi. Allt var/er orka, þessi guðdómlega orka, hún er næstum áþreifanlega þykk en það eru samt fáir að skynja það hversu mögnuðu umhverfi við lifum í. Jafnvel litirnir urðu skærari, þykkari og allt andaði.

Þegar ég kom á vaktina vissi ég að ég yrði að skrifa allt niður þar sem ég vissi að ég myndi ekki muna nokkurn skapaðan hlut fyrir horn. Ég gekk um á vaktinni og skynjaði fólkið sem ég var að annast. Það var sérstakt, allir voru með vakandi orkustöðvar, önduðu í gegnum þær og orkan í kringum fólk var VAKANDI.

Líkaminn var vakandi, lifandi, andandi. Og enginn sá þetta og enginn skynjaði hversu stórkostleg við erum í raun. Ljós, lifandi ljós, lifandi kærleikur, lifandi ást.

Vá, þetta var svo stórkostlegt allt saman.

Ég fann að ég g*t t.d. tengt mig við Snæfellsjökul og andað orkunni inn sem hann hafði að geyma, ég var samt stödd í vinnu á endurhæfingu í Reykjavík. Ég fann þetta orkuflæði alla vaktina og síðan fór ég heim og hélt áfram að upplifa á þennan hátt.

Þá fór ég að hugsa: Bíddu, verð ég alltaf svona hér eftir? Mun ég halda áfram að sjá heiminn út frá öðrum forsendum en áður? Geng ég hérna um og anda að mér hinni guðdómlegu jörð sem ég geng á, finn að trén eru full af gleði og ást, faðma mig ef ég stilli mig inn á þau? Finn ég kristallana mína og get andað orku þeirra inn ef ég þarf á henni að halda?

Vá, ég hringdi í kennarann minn og spurði hana hvort ég yrði alltaf svona. Hún spurði: „Hvernig svona?“ Ég g*t eiginlega ekki útskýrt fyrir henni hvernig svona. Þannig að ég ákvað að ég yrði að vera svona þangað til annað kæmi í ljós.

Auðvitað kom fljótlega að því að mér var skellt til JARÐAR aftur og það sennilega þann daginn eða daginn eftir. Já, smá harkaleg lending en ég var samt dálítið ánægð að vera orðin aftur nokkuð eðlileg eða svona eins og flestir myndu telja það eðlilegt.

Vildi ég alltaf upplifa heiminn svona? Ég er ekki viss um það, en mikið ofboðslega þótti mér vænt um að fá að sjá hversu stórkostleg við erum og hversu stórkostlegu umhverfi við erum í. Og ég tala nú ekki um hversu mögnuð tækifæri við höfum ef við viljum bara nýta þau.

Hugsið ykkur að þið getið tengst uppáhaldsfjallinu ykkar og ákveðið að þið viljið upplifa orkuna í því, það er að segja þá sem er jákvæð og góð fyrir ykkur. Þið setjist niður, byrjið að anda inn í gegnum orkustöðvarnar hverja og eina þangað til þið hafið orðið meðvituð um þær allar. Síðan farið þið með vitundina að fjallinu ykkar og andið orku þess inn.

Það er líka hægt að hugsa sér uppáhaldskristalinn, hvar sem hann er staddur í heiminum, þið andið orku hans inn í orkuhjúpinn í gegnum orkustöðvarnar eða þá orkustöð sem þið hafið ákveðið að þið þurfið á orku hans að halda.

Eigum við að tala um allt hitt sem hægt er að gera? Þið hafið örugglega ykkar eigin upplifun af uppljómunar broti því engin upplifir þetta eins.

Kannski er þetta orðið gott en mig langar að bæta einu við.

Eldhúsið mitt er alveg mjög fínt eins og ég sé það en ekkert upp á 10 sennilega ef það væri metið eftir fegurðarstaðli einhvers. Eina nóttina dreymdi mig akkúrat það, eldhúsið mitt og þá hvernig það er orkulega.

Þessi sama flæðandi orka, mögnuð guðsorka/ég hef ekkert annað orð yfir það. Þykk orka af kærleika, ást, þekkingu, sköpunarorka í orðsins fyllstu merkingu.

Vá, þessi orka, þessi kveikja sköpunar er eitthvað sem allir hafa alls staðar, sérstaklega þar sem er verið að skapa eins og til dæmis mat. Þegar við erum að mála myndir, mála veggi, gera handavinnu, skrifa og tala. Allt er þetta sköpunarorka og sköpunarorkan er guðdómurinn sjálfur.

Þú og ég og allir hinir erum sköpunarorka. Efnislíkaminn varð til í/úr þessari sköpunarorku. Við erum sköpunarverk sem hefur orðið til úr sköpunarorku og þá er ég BARA að tala um líkamann sjálfan.

Við erum skapandi sköpunarverk, sköpuð úr kærleikskjarna guðdómsins.

Við erum guðdómurinn sjálfur.

Eigum við að ræða allt hitt. 😊

Stundum vildi ég geta sýnt þessa orku og hversu mögnuð hún er en þessi orð verða að duga í bili. 😊

Njótið sköpunarinnar. 😊

29/10/2026

Hættan gæti verið liðin hjá.

En líkaminn getur haldið áfram að vera á varðbergi árum saman.

Það getur birst sem kvíði sem kemur fyrirvaralaust.
Stöðug þörf fyrir að hafa stjórn á öllu.
Sambönd sem vekja aftur upp sama óttann.
Eða tilfinningamynstur sem endurtaka sig — sama hversu mikil innri vinna hefur þegar farið fram.

Þessi viðbrögð eru ekki merki um veikleika.

Þau geta verið leiðir sem hugurinn og líkaminn lærðu til að lifa af.

Healing Days™ sameinar s*x alþjóðlega þekkta fyrirlesara á ókeypis viðburði sem fer fram í beinni á netinu. Þar verður sjónum beint að því að skilja áföll og kanna hvernig heilun getur farið fram:

✨ Dr. Gabor Maté
✨ Dr. Andrew Huberman
✨ Marisa Peer
✨ Alain de Botton
✨ Ashley Judd

Á s*x dögum, sem geta markað upphaf breytinga, færðu innsýn í hvernig þú getur:

→ Skilið duldar rætur tilfinningamynstra sem endurtaka sig
→ Róað taugakerfi sem er undir of miklu álagi
→ Losnað undan hamlandi viðhorfum í undirmeðvitundinni
→ Byggt upp heilbrigðari og öruggari sambönd
→ Endurheimt traust á sjálfri þér og verið trú eigin tilfinningum og gildum
→ Tekið raunhæf skref frá því að vera í viðvarandi viðbragðsstöðu í átt að bata

Þetta snýst ekki um að verða önnur manneskja.

Það snýst um að skilja hvað gerðist, sleppa því sem þú þarft ekki lengur að bera og finna leiðina aftur til þeirrar sem þú ert í raun og veru.

25/10/2026

❤️✨️

Samviskubitið talarEf við skoðum samviskubitið hjá okkur er hugsanlegt að það sé jafnvel stærra orkulega séð heldur en t...
24/10/2026

Samviskubitið talar

Ef við skoðum samviskubitið hjá okkur er hugsanlegt að það sé jafnvel stærra orkulega séð heldur en til dæmis „orka hins særða sjálfs“. Fórnarlambsvitund, vanmáttarvitund eða hvað við viljum kalla það.

Samviskubitið hefur svo sannarlega verið að birta sig í hinum ýmsu myndum hjá mér þessa síðustu daga. Eða þá að ég er farin að veita því eftirtekt hversu oft það er að tala við mig. Vá! Ég held að það sé um það bil þúsund sinnum á dag.

Bara lítið dæmi: Þar sem ég er að hætta að borða mat eftir klukkan fimm á daginn, þá fékk ég samviskubit yfir því að fá mér poppkorn í gærkvöldi. Og þar sem ég átti ekki örbylgjupopp, þá voru það maísbaunir poppaðar í smjöri í potti. Þannig að það sé sagt.

Já, litla samviskubitið segir mér núna alls konar með börnin mín, að ég hafi nú ekki aldeilis verið nógu góður uppalandi og hafi gert þessi og þessi mistök í uppeldinu. Og í þokkabót hafi ég verið svo upptekin af sjálfri mér að ég hafi alls ekki veitt þeim nóga athygli í æsku og bara enn þann dag í dag.

Það er alveg svona skamm, skamm þarna. Ég fór bara að vinna úti í fiski á veturna og var ekki til staðar til að hjálpa þeim með heimanámið.

Jæja, það hefur líka komið upp hversu mikið við samviskubitavæðum börnin og barnabörnin þegar þau eru að stíga sín fyrstu skref í átt að því að verða sjálfstæðir einstaklingar á unglingsárunum og eru að þreifa sig áfram í ástarmálunum.

Vá, allar áhyggjurnar, hvað og hvað. Og svo að láta þau nú heyra hvað þau komu seint heim og hvernig þau hafi látið mig hafa áhyggjur af sér. Hver kannast ekki við þetta, hvað það er erfitt að sleppa börnunum yfir í fullorðinsárin?

Svo er það þetta að maður ætti nú að gera þetta og hitt í alls konar aðstæðum í lífinu, eins og hvort ég hafi nú kannski ekki verið nógu góð við fjölskylduna, skólafélaga, vinnufélaga og alla hina. G*t ég gert meira og betur og verið meira til staðar?

Já, þetta er alls konar. Allan daginn.

Ég hefði nú átt að fara út og taka myndir í þessu góða veðri í staðinn fyrir að sitja hérna og prjóna. Ég ætti nú að vera búin að lesa meira í bókunum sem ég fékk á bókasafninu. Ég ætti nú að vera búin að skrifa fleiri samantektir um forfeður og formæður til þess að heila ættarlínuna. Ég ætti nú að vera búin að fara út og sópa laufin af stéttinni. Ég ætti að vera búin að fara í ræktina alla daga til að styrkja líkamann.

Allt þetta endalaust. Hversu mikið er samviskubitið að stjórna lífi okkar eða líðan? Vá, ég held að það sé dálítið mikið og oft.

Ég man eftir því að ég var með kærasta þegar ég var 15 ára sem ég hafði nú alveg takmarkaðan áhuga á, en ég g*t bara alls ekki sagt honum upp af því að samviskan sagði mér að þá myndi ég særa hann svo djúpt.

Það endaði reyndar með því að ég sagði honum upp með því að skrifa honum bréf. Ég átti auðveldara með að tjá mig þannig heldur en að horfast í augu við hann og segja honum að ég vildi ekki lengur vera í þessu sambandi.

En seinna var ég í öðru kærastasambandi sem endaði á því að hann bauð mér ekki á rúntinn með sér þegar hann hafði skipt Mözdunni út fyrir amerískan bíl. Það var nóg til þess að ég steig upp í flugvél næsta dag og sambandi okkar var lokið. Það samband sleit ég líka með því að skrifa bréf.

Vá, það var búið að ganga á ýmsu í sambandinu, eins og að við vorum sundur og saman og hann hafði sýnt mér ofbeldi sem ég var ekki að sætta mig við. En þetta var það sem gerði útslagið að ég ákvað að enda þetta. Sem betur fer gerðist akkúrat þetta með bílinn, þar sem þarna var mér loksins nóg boðið.

Ég hefði allavega aldrei orðið ánægð í þessu sambandi eða getað treyst honum, þar sem endalaust var verið að draga mig sundur og saman, að hætta, ekki hætta.

Þrátt fyrir ofbeldi sem ég g*t ekki sætt mig við var ég samt með samviskubit yfir þessu og ekki bætti úr að mamma kom líka inn samviskubiti hjá mér yfir því að vera að hætta með honum.

Auðvitað án þess að hafa hugmynd um hvað var búið að ganga á í raun og veru.

Samviskubitavæðingin er svo mikil í uppeldinu hjá okkur að það er mjög merkilegt. Það er ekki eins og við vitum alla söguna á bak við hvers vegna fólk tekur ákvörðun um til dæmis að stíga út úr hjónabandi.

Fólk fær alls konar yfir sig í því ferli og margir snúa baki við þeim sem tekur loksins af skarið, þó að það sé kannski löngu kominn tími á að enda eitthvað sem er ekki að ganga upp lengur.

Sá sem tekur loksins ákvörðunina er sá sem fær oft samviskubitið og finnst hann hafa svikið makann, börnin, barnabörnin og alla hina.

En átti þá frekar að svíkja sjálfa sig?

Nei, ég held að við þurfum alltaf, þegar upp er staðið, að standa með okkur sjálfum því það gerir enginn fyrir okkur. Ef við erum orðin vansæl í sambandi þá þurfum við að stíga upp og yfirgefa partíið, sama hversu sárt sem það reynist í upphafi.

Þrátt fyrir stóra samviskubitið sem því getur fylgt, þurfum við stundum að velja okkur sjálf fram yfir allt sem við elskum, til þess að hætta að yfirgefa okkur sjálf.

Þegar upp er staðið held ég að það geti verið öllum til góðs að slíta sambandi sem er komið að leiðarlokum. Það getur verið ákveðin frelsun fyrir báða aðila, því þá fær hvor um sig tækifæri til að halda áfram með sitt líf, fara sínar eigin leiðir og skapa sér nýja framtíð.

Fyrir mig var stærsti lærdómurinn af því að fara út úr hjónabandi að verða loksins sjálfstæð. Að vinna fyrir mér og borga mína eigin reikninga, takast á við það ferli að selja íbúð og kaupa aðra.

Bara það að fara í banka og fá lán var alveg að fara með mig. Ég var svo hrædd af því að ég hafði aldrei þurft að sjá um bankamálin áður. Ég var líka mjög hrædd um hvort ég gæti yfirleitt séð um mig sjálf, það er að standa í afborgunum af lánum og þeim útgjöldum sem fylgja því að halda heimili.

En ég hef lært þetta allt smám saman og get líka sagt að ég hafi verið svo heppin að eiga góða bakhjarla, sérstaklega börnin mín, sem hafa stutt mig í gegnum þetta stóra skref.

Og nú þegar ég sit hér og skrifa um samviskubitið, þá velti ég því fyrir mér hvort ég sé enn þann dag í dag að reyna að réttlæta þessa ákvörðun mína. Að útskýra hvers vegna ég þurfti að fara, hvað ég lærði af því og hversu mikið ég þroskaðist við það.

Er það kannski samviskubitið sjálft sem er enn að tala við mig í gegnum þennan pistil?

Gömul ástarsambönd og tilfinningaleg tengslVenus í baksnúning í Sporðdreka (eins og staðan er núna) getur táknað tímabil...
23/10/2026

Gömul ástarsambönd og tilfinningaleg tengsl

Venus í baksnúning í Sporðdreka (eins og staðan er núna) getur táknað tímabil þar sem við finnum að fyrri ástarsambönd geta bankað uppá oftast í orkulegum skilningi en stundum í raunveruleikanum. Það er gott að skoða hvernig við bregðumst við því og vera meðvituð um að við höfum tækifæri til þess að skoða þau frá nýju sjónarhorni.

Við gætum spurt okkur:

• Hvers vegna laðaðist ég að þessari manneskju?

• Var ég að leita að ást eða öryggi?

• Hversu mikið af sjálfri mér gaf ég eftir til að viðhalda sambandinu?

• Var ég að elska manneskjuna eins og hún var í raun og veru, eða var ég ástfangin af þeirri ímynd sem ég hafði skapað mér af henni, sveipaðri ljósbleikum skýjum vonar og væntinga?

Þetta þarf alls ekki að þýða að við viljum endurvekja gömul sambönd. Stundum erum við einfaldlega að losa okkur undan tilfinningalegum áhrifum þeirra.

Sjálfsvirði og ótti við höfnun

Venus tengist sjálfsvirði en Sporðdrekinn getur leitt okkur að þeim stöðum sem við höfum ekki viljað horfast í augu við hingað til. Þar gætum við hafa upplifað höfnun, skömm, svik, óöryggi, varnaleysi eða ótta við að vera ein.

Þarna geta vaknað mikilvæg spurning:

Hef ég látið framkomu annarra ákvarða hvers virði ég tel mig vera?

Baksnúningur Venusar getur verið tækifæri til að endurskoða slíkar hugmyndir.

Við getum áttað okkur á því að einhver hafi komið illa fram við okkur án þess að það þýði að við séum óverðug ástar.

Framkoma annarra getur sært okkur, en hún þarf ekki að verða að sannleika um hver við erum.

Þegar við horfum til baka getum við líka séð að gömlu ástarsamböndin hafa kennt okkur svo margt um okkur sjálf. Þau hafa kennt okkur að þekkja betur okkar eigin drauma og langanir, að setja mörk og standa með okkur sjálfum. Greina á milli þess að elska aðra og þess að yfirgefa okkur sjálf í nafni ástarinnar.

Við getum líka verið þakklát fyrir fallegu stundirnar. Ástina og það sem við lærðum af samverunni, jafnvel þótt sambandið hafi ekki orðið eins og við höfðum vonað.

Það dýrmætasta við að horfast í augu við gamlar tilfinningar er að sjá að við getum haldið áfram að elska og finna hvers virði við erum hvort sem við erum ein eða með öðrum.

Samstaða Sólar og Venusar þann 24. október 2026, við um 1° í Sporðdreka, er sérstaklega áhugaverð í stjörnuspeki vegna þ...
23/10/2026

Samstaða Sólar og Venusar þann 24. október 2026, við um 1° í Sporðdreka, er sérstaklega áhugaverð í stjörnuspeki vegna þess að Venus er í baksnúningi þegar hún mætir Sólinni.

Þetta er táknrænt talið upphaf nýs Venusarhrings, eins konar endurfæðing Venusar. Gamlar hugmyndir um ást, sambönd, sjálfsvirði og eigin þarfir geta komið til endurskoðunar.

Hvað merkir þetta almennt?

1. Endurmat á ást og samböndum

Fólk getur farið að velta því fyrir sér hvernig það hefur elskað, hvað það hefur þegið og hvað hefði mátt fara betur í samböndum. Gömul ástarsambönd geta komið upp í hugann, í draumum eða í raunveruleikanum. Þið gætuð hitt gamlan kærasta eða kærustu sem þið hafið ekki séð í mörg ár. Ekki til þess að við endurvekja þau, heldur vegna þess að það er einhver orka sem tengist þeim sem hefur ennþá áhrif í nútímanum.

2. Sjálfsvirði og sjálfsást

Venus tengist því sem okkur finnst verðmætt, þar á meðal okkur sjálfum. Þessi samstaða getur táknað tækifæri til að skoða hvort við höfum byggt sjálfsvirði okkar á viðurkenningu annarra.
Spurningin gæti verið: Get ég fundið fyrir eigin verðmæti án þess að þurfa stöðugt staðfestingu utan frá?

3. Sporðdrekinn kallar á dýpt

Þar sem samstaðan verður í Sporðdreka snýst táknmálið ekki aðeins um rómantíska ást heldur líka um traust, nánd, berskjöldun, afbrýðisemi, höfnun, valdabaráttu og ótta við að missa.
Við gætum farið að sjá betur hvernig gömul tilfinningaleg reynsla hefur mótað viðbrögð okkar í samskiptum.

4. Að sleppa gömlum tengslamynstrum

Venus á baksnúningi er oft tengd því að líta til baka. Þegar hún mætir Sólinni er það í táknrænni túlkun eins og ljós sé varpað á eitthvað sem áður var hulið. Við getum áttað okkur á því að hegðun sem við töldum einu sinni vera ást var kannski frekar ótti við höfnun, þörf fyrir öryggi eða löngun eftir viðurkenningu.

5. Nýr skilningur á eigin löngunum

Við getum líka uppgötvað að það sem við þráðum áður er ekki lengur það sem við viljum í dag. Gildi okkar breytast með reynslu og auknum sjálfsskilningi.

Hvers vegna er neðri samstaðan sérstök?

Frá jörðu séð er Venus þá á milli Jarðar og Sólar. Í stjörnuspeki er þetta talið upphaf nýs innri Venusarhrings, þar sem áherslan er á að endurskoða eigin gildi áður en við förum að tjá þau út á við með nýjum hætti.

Það er líka áhugavert að Venus verður síðar morgunstjarna. Þess vegna er þessi samstaða stundum tengd táknrænni endurfæðingu.

Kjarninn í þessari samstöðu

Við getum elskað aðra án þess að yfirgefa okkur sjálf. Við getum fundið fyrir sársauka án þess að gera hann að sannleika um eigið virði. Og við getum sleppt gömlum tengslamynstrum án þess að loka hjartanu og finna til ástar.

23/10/2026
23/10/2026
Merkúr í baksnúningiÞann 24. október fer Merkúr í baksnúning í Sporðdreka og verður þar með Venusi, sem er einnig í baks...
23/10/2026

Merkúr í baksnúningi

Þann 24. október fer Merkúr í baksnúning í Sporðdreka og verður þar með Venusi, sem er einnig í baksnúningi, á einu mest tilfinningalega afhjúpandi tímabili ársins.

Sannleikurinn sem þú hefur forðast að horfast í augu við, samböndin sem aldrei fengu skýr endalok og mynstrin sem þú hélst að þú hefðir loksins losnað úr koma aftur í brennidepil.

Sporðdrekinn dregur það sem hefur verið grafið upp á yfirborðið og kallar á þig að horfast í augu við það sem enn hefur vald yfir þér og átta þig á hverju þú ert loksins tilbúin að sleppa.

Þetta eru mikilvæg þáttaskil í ást, trausti og þeim karmísku lærdómum sem hafa fylgt þér árum saman.

Þegar Merkúr fer aftur í beina göngu gætirðu hafa öðlast skilning á því hvers vegna sumt varð að taka enda, hvers vegna annað fékk aldrei raunverulegan endi og hvað þú ert ekki lengur tilbúin að bera með þér inn í framtíðina.

Mercury Retrograde begins October 24 in Scorpio, joining Venus Retrograde in a rare period of emotional reflection that places our relationships, unresolved histories, and deepest attachments under the microscope. Mercury governs communication, memory, and the way we interpret our experiences, while Venus influences love and the value we place on ourselves and others. With both planets retracing their steps through Scorpio, the coming weeks invite us to revisit the stories we have told ourselves about the past and consider whether we still believe them.

Memory is complicated because we rarely remember an experience exactly as it happened. We remember how it made us feel, what we hoped it would become, and the meaning we attached to it at the time. Years later, you can look back on the same relationship and understand it completely differently. The behavior you once excused becomes impossible to ignore. The ending you considered a personal failure begins to look like an act of protection. Even the person you believed you could never live without becomes someone you are grateful to have known without wishing to know them again. Time gives us access to perspectives that pain can make difficult to recognize.

As Mercury moves backward through Scorpio, pay attention to the memories that return and the questions that begin to feel important again. Their reappearance does not mean you are destined to repeat the past. You may finally be able to understand an experience without seeing it through the eyes of the person who was still hoping it would turn out differently. And that understanding can change everything. The greatest revelation of this retrograde may be discovering that the story you have carried for years was never the whole story, and that you are finally ready to see it differently.

23/10/2026

The Sun Enters Scorpio! Your transformation for the rest of 2026 begins now. 🌞✨

Address

Mosfellsbær

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Viska og gleði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Viska og gleði:

Shortcuts

Share

Nearby health & beauty businesses