Sóltún Reykjavík

Directions Website Contact the business

Sóltún Reykjavík Sóltún heilbrigðisþjónusta starfar á sviði velferðarþjónustu fyrir aldraða á Íslandi

Krakkar úr Waldorfskólanum í Sóltúni löbbuðu um hverfið með luktir og sungu fyrir nágranna sína í gær. Þau koma líka reg...
12/11/2026

Krakkar úr Waldorfskólanum í Sóltúni löbbuðu um hverfið með luktir og sungu fyrir nágranna sína í gær. Þau koma líka reglulega til okkar og syngja fyrir íbúana og spjalla. Alltaf yndislegt að sjá þau!❤️👼

Rebekka Ingadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Sóltúns í Reykjavík.Rebekka kemur frá Hrafnistu þar sem hún var síðas...
02/11/2026

Rebekka Ingadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Sóltúns í Reykjavík.

Rebekka kemur frá Hrafnistu þar sem hún var síðast forstöðumaður Hrafnistu Skógarbæjar. Rebekka er hjúkrunarfræðingur að mennt, býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun hjúkrunarheimila og kom meðal annars að opnun Hrafnistu í Boðaþingi.
Við erum afar ánægð að fá Rebekku til liðs við okkur. Reynsla hennar mun nýtast vel bæði í daglegu starfi Sóltúns Reykjavík og í þeirri uppbyggingu sem fram undan er. Hún hefur hafið störf.

Hildur Björk Sigurðardóttir, fráfarandi forstöðumaður, hefur látið af störfum. Sóltún þakkar Hildi kærlega fyrir hennar framlag og farsælt samstarf og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.

27/10/2026

Við óskum öllum iðjuþjálfum, en auðvitað sérstaklega frábæru iðjuþjálfunum okkar hjá Sóltúni, innilega til hamingju með Alþjóðadag iðjuþjálfa!

Bleikur ljómi var yfir öllum starfsstöðvum Sóltúns í dag á Bleika deginum!😊🩷
21/10/2026

Bleikur ljómi var yfir öllum starfsstöðvum Sóltúns í dag á Bleika deginum!😊🩷

Bjarni Hall kíkti í heimsókn í gær og tók nokkur lög fyrir íbúana. Við þökkum honum kærlega fyrir heimsóknina!💛
16/10/2026

Bjarni Hall kíkti í heimsókn í gær og tók nokkur lög fyrir íbúana. Við þökkum honum kærlega fyrir heimsóknina!💛

Alþjóðlegi handþvottadagurinn er í dag!Áður en þú heimsækir íbúa á hjúkrunarheimili skaltu staldra við og þvo þér um hen...
15/10/2026

Alþjóðlegi handþvottadagurinn er í dag!

Áður en þú heimsækir íbúa á hjúkrunarheimili skaltu staldra við og þvo þér um hendurnar.

Það tekur aðeins 20 sekúndur en getur skipt miklu máli. Íbúar á hjúkrunarheimilum eru oft viðkvæmari fyrir sýkingum og því geta einföld kvef eða magakveisur orðið alvarleg veikindi hjá þeim.

Hreinar hendur eru ein einfaldasta og öflugasta vörnin sem við höfum. Þvoið hendurnar og notið svo handspritt við komu á heimilið. Geymið heimsóknir ef þið eruð slöpp eða með einkenni veikinda.

Hjálpumst að við að verja fólkið okkar💛

Hressir nemendur úr Verslunarskóla Íslands kíktu í heimsókn í viku einmanaleikans í síðustu viku, hlaðin bingóvinningum,...
12/10/2026

Hressir nemendur úr Verslunarskóla Íslands kíktu í heimsókn í viku einmanaleikans í síðustu viku, hlaðin bingóvinningum, og héldu skemmtilegt bingó fyrir íbúa Sóltúns í Reykjavík. Krakkarnir fengu hjálp við bingóstjórnina frá einni 6 ára starfsdagsdömu sem var í vinnunni með mömmu. Ótrúlega skemmtilegt framtak hjá þessum flottu krökkum og við þökkum þeim kærlega fyrir heimsóknina! 💛

Gulum september er lokið en í septembermánuði var sett upp stöð þar sem hægt var að skilja eftir góð skilaboð til náunga...
08/10/2026

Gulum september er lokið en í septembermánuði var sett upp stöð þar sem hægt var að skilja eftir góð skilaboð til náungans. Það er skemmtilegt að renna yfir skilaboðin, sérstaklega kveðjurnar til frábæra starfsfólksins okkar🙂👏

Vika einmanaleikans hefst í dag.Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einman...
05/10/2026

Vika einmanaleikans hefst í dag.
Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika sem við finnum öll fyrir einhvern tímann á lífsleiðinni.
Hægt er finna ýmsar upplýsingar á vefsíðu Viku einmanaleikans og viðburðardagskrá fyrir vikuna. Einnig er skemmtilegt bingóspjald á vefsíðunni sem er með hugmyndir af hlutum sem er hægt að gera til að rjúfa einsemdina💛

Verkefninu er ætlað að opna á umræðu um einmanaleika í samfélaginu, upplýsa almenning um orsakir og afleiðingar, hvetja til aðgerða og efla samtakamátt í þjóðfélaginu gegn einmanaleika.

Í dag fögnum við fólkinu sem hefur mótað samfélagið okkar því í dag er Alþjóðadagur aldraðra💛Í tilefni dagsins hvetur að...
01/10/2026

Í dag fögnum við fólkinu sem hefur mótað samfélagið okkar því í dag er Alþjóðadagur aldraðra💛
Í tilefni dagsins hvetur aðalritari Sameinuðu þjóðanna til samstöðu milli kynslóða og til þess að langt líf sé líka gott líf, með valfrelsi, öryggi og reisn.

Fólk lifir í dag lengur en nokkru sinni fyrr og það kallar á fjölbreytta þjónustu sem mætir fólki þar sem það er. Það er einmitt það sem við vinnum að alla daga hjá Sóltúni, að veita eldra fólki þá þjónustu sem það þarf til að lifa góðu lífi💛

www.soltun.is

Address

Sóltúni 2
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sóltún Reykjavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Sóltún Reykjavík:

Shortcuts

Share

Nearby health & beauty businesses