10/10/2026
Grænkál er góð uppspretta A-, B- og C-vítamína auk kalís, fosfórs og járns.
Uppskrift er einföld: Stilla ofn á 125°C á blæstri, skola kálið, taka af stilkum og setja á smjörpappír. Sulla smá olíu yfir og strá saltflögum.
Baka við ca. 15-25 mín.
Grænkál er náskylt öðrum káltegundum, eins og höfuðkáli, rósakáli, blómkáli og spergilkáli en einnig mustarði, piparrót og karsa.
Grænkál myndar ekki höfuð eins og flestar aðrar káltegundir, heldur mjög stór og hrokkin blöð. Það er tvíært, þannig að nái það að lifa af veturinn, myndar það klasa með gulum blómum næsta sumar. Grænkál þrífst einkar vel hér á landi. En hefur jafnframt afar takmarkað geymsluþol.
Grænkál er bragðgott, einkum ef það hefur náð að frjósa, því frostið örvar niðurbrot á mjölva þannig að það verður sætara. Í mörgum löndum er grænkál vinsælt grænmeti og er selt í álíka magni og höfuðkál.
Heimild: www.islenskt.is