02/11/2026
Hefur þú upplifað tónheilun þar sem hundruð kristalla, fjölbreytt hljóðfæri og heilunarvinna mætast? Í Ljósheimum höfum við skapað sérstakt rými þar sem tónar og kristallar fá að vinna saman. Hundruð kristalla umlykja þig og áður en heilunin hefst færð þú að velja þér kristalla sem þú leggur á líkamann meðan á heiluninni stendur. Síðan leggst þú niður, lokar augunum og leyfir tónunum að taka þig með í ferðalag. Kristalsskálar, gong og fjölbreytt hljóðfæri skapa hljóðheim sem þú færð að sökkva þér inn í.
En það sem gerir þessa upplifun sérstaka er ekki bara tónarnir eða kristallarnir.
Margrét Arna og Sólbjört eru báðar reyndir heilarar og flétta þekkingu sinni, reynslu og heilunarvinnu saman við tónana og kristallana. Þannig verður til upplifun þar sem tónheilun og kristallaheilun mynda eina heild. Þú þarft ekkert að kunna, ekkert að gera og engu að ná. Bara mæta, leggjast niður og leyfa þér að vera.
Næsta tónheilun er miðvikudqg 4. nóvember kl. 19.00. Í Ljósheimum. Við bjóðum öll velkomin. Athugið að það er takmarkað pláss í boði svo það er nauðsynlegt að skrá sig.