Asana Jóga

Call Directions Website Contact the business

Asana Jóga 🔗https://asanajoga.is🌷Hér deili ég með ykkur viðburðum, námi og fræðslu um jógatengd málefni.

✨ AÐEINS 1 PLÁSS LAUST! ✨Restorative Deluxe – föstudaginn 6. nóvember kl. 17:00–19:00Tvær klukkustundir þar sem þú þarft...
01/11/2026

✨ AÐEINS 1 PLÁSS LAUST! ✨

Restorative Deluxe – föstudaginn 6. nóvember kl. 17:00–19:00

Tvær klukkustundir þar sem þú þarft ekkert að gera, hvergi að flýta þér og mátt einfaldlega leyfa þér að hvílast.

Bríet og Unnur leiða þig í gegnum djúpa slökun með stuðningi frá púðum og teppum. Gong, kristalsskálar og notaleg stund með tei fullkomna upplifunina.

📍 Asana Jóga, Faxafen 10
✨ Verð: 7.500 kr.

Aðeins eitt pláss eftir – tryggðu þér það áður en það hverfur!

Skráning: https://asanajoga.is/afsakid-hle/

Hvað ef þú byrjaðir daginn á því að gera eitthvað gott fyrir sjálfa þig?Áður en dagurinn fer á fullt, verkefnin taka yfi...
01/11/2026

Hvað ef þú byrjaðir daginn á því að gera eitthvað gott fyrir sjálfa þig?

Áður en dagurinn fer á fullt, verkefnin taka yfir og allir þurfa eitthvað frá þér – gefðu þér eina klukkustund.

✨ Vaknaðu líkamann með markvissri hreyfingu.
✨ Byggðu upp styrk, liðleika og betri líkamsvitund.
✨ Byrjaðu daginn með skýrari huga og meiri orku.
✨ Njóttu þess að vera búin að gera eitthvað fyrir þig áður en vinnudagurinn hefst.

Morgunjóga með Nönnu – Iyengar jóga 🧘‍♀️

Frá mánudeginum 2. nóvember hittumst við á mánudögum og miðvikudögum kl. 06:15–07:15.

Þú velur hvort þú mætir í salinn hjá Asana Jóga eða rúllar út mottunni heima og tekur þátt í gegnum Zoom.

Engin ferðalög, ekkert stress – bara þú, mottan og góð byrjun á deginum.

⏰ SÍÐASTI SÉNS AÐ SKRÁ SIG ER Í KVÖLD FYRIR KL. 21:00!

💛 Prófaðu að byrja daginn öðruvísi. Þú gætir orðið hissa á hvað ein klukkustund getur gert fyrir restina af deginum.

ByrjaðuDaginnVel

26/10/2026

Byrjaðu daginn með jóga ☀️ Heima hjá þér eða í jógasalnum!

Frá 2. nóvember geturðu tekið þátt í morgunjóga með Guðríði Nönnu Helgadóttur, viðurkenndum Iyengar jógakennara með kennsluréttindi frá Danmörku.

🕕 Mánudaga og miðvikudaga kl. 06:15–07:15
📍 Asana Jóga, Faxafeni 10, eða í beinni á Zoom

Við vinnum með styrk, liðleika og góða líkamsbeitingu, með persónulegri leiðsögn. Þú færð Zoom-tengil 30 mínútum fyrir tímann og upptöku eftir á sem er aðgengileg í viku.

Fyrir iðkun heima þarftu jógadýnu, tvær blokkir og nokkur teppi eða stór handklæði. Gott er að hafa stól og belti við höndina og pláss við vegg.

https://asanajoga.is/a-netinu-eda-i-sal-nu-getur-thu-baedi/

https://asanajoga.is/a-netinu-eda-i-sal-nu-getur-thu-baedi/
22/10/2026

https://asanajoga.is/a-netinu-eda-i-sal-nu-getur-thu-baedi/

Morgunjóga með Nönnu – á netinu og í sal Frá 2. nóvember geturðu tekið þátt í Iyengar jóga með Guðríði Nönnu Helgadóttur, hvort sem þú mætir í salinn hjá Asana Jóga eða iðkar heima í beinni útsendingu. Þú færð sendan Zoom-tengil 30 mínútum áður en tíminn hefst...

21/10/2026

AFSakið HLÉ 🤍

Því hvíld er ekki lúxus – hún er nauðsyn.

Við erum svo vön því að vera á ferðinni, sinna verkefnum, hugsa um aðra og halda öllum boltum á lofti. En hvenær gefum við okkur raunverulega leyfi til að stoppa?

Hvíld er ekki eitthvað sem við þurfum að vinna okkur inn fyrir. Hún er ein af grunnþörfum líkamans, rétt eins og hreyfing, næring og svefn.

Þegar við gefum okkur tíma til að hvílast fær taugakerfið tækifæri til að færast úr stöðugri árvekni yfir í ró og endurheimt. Vöðvaspenna getur minnkað, öndunin orðið rólegri og hugurinn fengið kærkomið hlé frá áreiti dagsins.

Í „Afsakið hlé“ bjóðum við þér að gera nákvæmlega þetta – að taka frá tíma fyrir sjálfa þig.

Við Bríet og Unnur leiðum þig í gegnum djúpa slökun með Restorative jóga. Með mjúkum stuðningi frá púðum, teppum og öðrum jógabúnaði fær líkaminn að hvílast án áreynslu. Þú þarft ekkert að gera, engu að ná og hvergi að vera.

Bara mæta, leggjast niður og leyfa okkur að hlúa að þér.

Stundum er það mikilvægasta sem við gerum að gera ekki neitt.

Gefðu þér leyfi til að taka hlé. Þú átt það skilið. 🤍

Asana Jóga – Faxafeni 10

Taugakerfið Slökun

20/10/2026

Byrjaðu daginn með morgunjóga í stúdíóinu eða heima hjá þér!

Þú getur tekið þátt í morguntímunum okkar á netinu kl. 06:15–07:15. Eftir tímann færðu senda upptöku, svo þú getur líka iðkað þegar þér hentar.

Hægt er að kaupa klippikort og fyrsti tíminn er frír — tilvalið að prófa og finna hvort þetta henti þér.

Þú skráir þig í stundaskránni, alveg eins og í aðra tíma hjá okkur á asanajoga.is.

Online eða í stofunni?
18/10/2026

Online eða í stofunni?

Afsakið hlé — tvær klukkustundir fyrir þig.Föstudaginn 6. nóvember bjóðum við, Bríet og Unnur, þér í nærandi stund með E...
18/10/2026

Afsakið hlé — tvær klukkustundir fyrir þig.

Föstudaginn 6. nóvember bjóðum við, Bríet og Unnur, þér í nærandi stund með Endurheimt – Restorative jóga.

Við verðum tvær að hlúa að þér, aðlaga jógabúnaðinn og hjálpa þér að finna þægilega hvíld í hverri stöðu. Teppin, pullurnar og stuðningurinn eru úthugsuð svo þú getir sleppt takinu og leyft þér að njóta.

Þú þarft enga reynslu af jóga. Komdu eins og þú ert og leyfðu okkur að sjá um þig þessa stund.

Föstudaginn 6. nóvember · kl. 17:00–19:00
Asana Jóga · Faxafeni 10, 2. hæð
Verð: 7.500 kr.

Skráning á asanajoga.is

Hvað er Iyengar jóga?Í Iyengar jóga vinnum við með nákvæmni, líkamsstöðu og meðvitaða hreyfingu. Stöðurnar eru byggðar u...
17/10/2026

Hvað er Iyengar jóga?

Í Iyengar jóga vinnum við með nákvæmni, líkamsstöðu og meðvitaða hreyfingu. Stöðurnar eru byggðar upp skref fyrir skref og aðlagaðar að ólíkum þörfum og getu.

Jógabúnaðurinn er mikilvægur hluti af iðkuninni. Kubbar, belti, teppi, pullur, stólar og jógaveggurinn hjálpa okkur að finna stuðning, skapa rými í líkamanum og dýpka skilning á stöðunum. Þannig getum við unnið bæði með styrk og liðleika og gefið okkur tíma til hvíldar.

Allir kennarar hjá Asana Jóga eru annað hvort með kennsluréttindi sem Iyengar-jógakennarar eða hafa að baki mikla reynslu af kennslu með Iyengar-aðferðinni.

Kynntu þér tímana og námskeiðin sem eru í boði á asanajoga.is — hlekkur í prófíl.

15/10/2026

Address

Faxafen 10
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Asana Jóga posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Asana Jóga:

Shortcuts

Share

Nearby health & beauty businesses