ART teymi Suðurlands

Directions Website

ART teymi Suðurlands ART teymið veitir fjölskyldum barna með hegðunar- og/eða tilfinningavanda stuðning og ráðgjöf

Ertu ART þjálfari í dvala?  Þá er þetta rétta námskeiðið fyrir þig !
22/10/2026

Ertu ART þjálfari í dvala? Þá er þetta rétta námskeiðið fyrir þig !

👀 TAKTU EFTIR!Við erum oft fljót að taka eftir því sem þarf að laga, leiðrétta eða minna á. En tökum við jafn oft eftir ...
06/10/2026

👀 TAKTU EFTIR!

Við erum oft fljót að taka eftir því sem þarf að laga, leiðrétta eða minna á. En tökum við jafn oft eftir því sem börnin okkar gera vel? Þegar við veitum jákvæðri hegðun athygli er líklegra að hún endurtaki sig. Stundum þarf ekki meira en nokkur vel valin orð.

🌱 Litlu sigrarnir skipta máli.

Hvaða litla sigri tókst þú eftir í dag?

Það er alltaf jafn gaman að fá fréttir af því þegar verið er að vinna með ART! 💙Hér má sjá skemmtilega frétt frá Naustas...
15/09/2026

Það er alltaf jafn gaman að fá fréttir af því þegar verið er að vinna með ART! 💙

Hér má sjá skemmtilega frétt frá Naustaskóla á Akureyri þar sem nemendur í 4. bekk eru nú að fara af stað í ART.

Það gleður okkur mikið að sjá hvernig ART er að festa sig í sessi víða um land og ekki síður að fá fréttir af öllu því góða starfi sem er í gangi. 🌟

Hvað eru þið að gera með ART?
Við elskum að heyra frá ykkur, endilega segið okkur frá því!

Takk fyrir að deila með okkur, Naustaskóli! 💙

Í morgun hófu nemendur í 4. bekk í Naustaskóla ART kennslu. Í Naustaskóla leggjum við ávallt mikla og ómælda áherslu á vellíðan, öryggi og jákvæðan félagsþ

ART teymið lét sig ekki vanta á BUGL ráðstefnuna Töfrar tengslanna í dag og mætti að sjálfsögðu í treyjum í tilefni dags...
04/09/2026

ART teymið lét sig ekki vanta á BUGL ráðstefnuna Töfrar tengslanna í dag og mætti að sjálfsögðu í treyjum í tilefni dagsins!

Haustönnin hjá ART teyminu fer skemmtilega af stað! 😄Það hefur verið nóg um að vera hjá ART-teyminu síðustu vikur og hau...
25/08/2026

Haustönnin hjá ART teyminu fer skemmtilega af stað! 😄

Það hefur verið nóg um að vera hjá ART-teyminu síðustu vikur og haustið fer sannarlega skemmtilega af stað!

Við höfum haldið tvö ART-réttindanámskeið, eitt á Selfossi og annað á Akureyri. Það er virkilega ánægjulegt að sjá áhugann á ART og gaman að fylgjast með nýjum ART-þjálfurum bætast í hópinn víða um land.

Við fengum svo tækifæri til að deila reynslu af ART á Fræðsludegi Árborgar þann 20. ágúst. Þar hélt ART-teymið vinnustofu fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla þar sem Selma Harðardóttir fjallaði um ART út frá eigin reynslu. Hún sagði frá því hvernig hún hefur nýtt ART í kennslu, hvernig hægt er að flétta ART inn í daglegt skólastarf og hvaða áhrif það hefur haft á nemendahópinn og hana sjálfa sem kennara.

Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að deila reynslu og hugmyndum um hvernig ART getur orðið hluti af daglegu starfi og sjá áhugann á því að nýta ART víðar.

Við hlökkum til áframhaldsins og allra þeirra spennandi verkefna sem fram undan eru í haust! 👏

Þú ert ART þjálfari... en það er langt síðan þú kenndir síðast ART! Hefur þú hugsað: 💭„Ég þarf aðeins að rifja þetta upp...
30/06/2026

Þú ert ART þjálfari... en það er langt síðan þú kenndir síðast ART!

Hefur þú hugsað:
💭„Ég þarf aðeins að rifja þetta upp“
💭„Hvar er mappan mín?“
💭„Ég ætla alltaf að byrja aftur... en geri það svo aldrei“

Ef svarið er já við einhverju af þessu, þá er upprifjunarnámskeiðið einmitt fyrir þig.

Á einum degi rifjum við upp aðferðirnar, kennsluna og framkvæmdina, auk þess sem þú færð nýtt og uppfært kennsluefni sem gerir þér auðveldara að hefja ART þjálfun á ný.

Það þarf stundum bara smá spark til að koma sér aftur af stað 😀

Skráning hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSes6lkJEUFw4arJH3bTg4c9r4H10FPufy-ZpibJksaHNJRc9A/viewform?pli=1

ART ER SMART ! 👍

Það stefnir í fjölmennt og skemmtilegt námskeið hjá okkur á Selfossi í ágúst. Tryggðu þér og teyminu pláss ! 🎉Skráning f...
09/06/2026

Það stefnir í fjölmennt og skemmtilegt námskeið hjá okkur á Selfossi í ágúst.

Tryggðu þér og teyminu pláss ! 🎉

Skráning fer fram inn á www.isart.is

29/05/2026

📢 Tryggja þarf framtíð ART-verkefnisins með langtímasamningum

Við hjá SASS tökum heilshugar undir ákall sem fram kom á Alþingi á dögunum þar sem Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra var hvött til dáða.

Tryggja þarf framtíð ART-verkefnisins með langtímasamningum, en úrræðið er gríðarlega mikilvægt forvarnar- og stuðningsúrræði fyrir börn og ungmenni. 🤝

Undanfarin ár hafa samningar við ART-teymið einungis verið til eins árs í senn sem skapar óvissu. Til að efla þessa þjónustu og fjölga sérfræðingum er fyrirsjáanleiki algjör forsenda.

Lestu nánar um málið, ART teymi Suðurlands og áskorun SASS á vefnum okkar 👇

Hvað er upprifjunarnámskeið og fyrir hverja? 🤔Upprifjunarnámskeið ART er ætlað þeim sem hafa lokið ART réttindanámskeiði...
28/05/2026

Hvað er upprifjunarnámskeið og fyrir hverja? 🤔

Upprifjunarnámskeið ART er ætlað þeim sem hafa lokið ART réttindanámskeiði (skiptir ekki máli hvenær) og vilja rifja upp kennsluaðferðirnar, fá aukið öryggi og koma sér aftur af stað í ART þjálfun. 💙

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

✨ félagsfærni
✨ sjálfsstjórn
✨ siðferði
✨nýtt og endurbætt efni
✨uppbyggingu og framkvæmd ART tíma

Námskeiðið hentar sérstaklega vel fyrir þá sem hafa ekki unnið með ART í einhvern tíma og vilja eflast í hlutverki ART þjálfara.

📍 Selfoss
📅 17. ágúst 2026
🕘 9:00–16:00

Óvænt losnaði eitt pláss á réttindanámskeið á Akureyri í janúar fyrir þig 🙂Endilega hafðu samband á isart@isart.is til a...
18/12/2025

Óvænt losnaði eitt pláss á réttindanámskeið á Akureyri í janúar fyrir þig 🙂
Endilega hafðu samband á [email protected] til að skrá þig ✅️

Address

Austurvegur 56
Selfoss
800

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ART teymi Suðurlands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share