Heilsuvitund

Call Directions Website Contact the business

Heilsuvitund Heilsuvitund býður upp á sjúkraþjálfun fyrir einstaklinga.

21/09/2020

Vegna hertra sóttvarna er skjólstæðingum nú skylt að vera með andlitsgrímu á meðan sjúkraþjálfun stendur. Við biðjum skjólstæðinga okkar um að vinsamlegast koma með eigin grímur þar sem ekki er hægt að tryggja fjarlægðarmörk í öllum tilfellum.
Við höldum svo áfram að vinna eftir tilmælum Landlæknis um sóttvarnir. Hlökkum til að sjá ykkur!

Lotuföstur (e. Intermittent fasting) hafa notið sívaxandi vinsælda um heim allan á síðastliðnum árum. Algengasta form lo...
10/09/2020

Lotuföstur (e. Intermittent fasting) hafa notið sívaxandi vinsælda um heim allan á síðastliðnum árum. Algengasta form lotuföstu er að borða allan mat innan c.a. 8 klukkustunda á sólarhring en fasta hinar 16 klukkustundirnar.

Margir hafa sínar efasemdir um þessa „tísku“ en rannsóknir sýna hins vegar að lotuföstur hafa jákvæð áhrif á endurnýjun frumna og vefja, hjarta- og æðakerfi, heilavirkni og líkamlegt hreysti. Þá virðast lotuföstur vera ákveðin mótvægisaðgerð gegn streitu, bólgumyndun, sykursýki og offitu.

Gæti verið að líkami okkar hafi ekki þróast með það í huga að melta mat allan sólarhringinn? Gæti verið að líkaminn okkar þurfi hlé frá meltingu til þess að geta sinnt öðrum hlutverkum betur?

Intermittent Fasting: Live ‘Fast,’ Live longer? 12/26/2019 Español 中文 The Benefits of Intermittent Fasting Credit: Johns Hopkins Medicine For many people, the New Year is a time to adopt new habits as a renewed commitment to personal health. Newly enthusiastic fitness buffs pack into gyms a...

Hreyfing hefur jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu.
27/08/2020

Hreyfing hefur jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu.

Líðan námsmanna hefur versnað jafnt og þétt síðastliðin ár en í fyrra sögðust um 40% unglinga í 10. bekk á Íslandi finna...
11/08/2020

Líðan námsmanna hefur versnað jafnt og þétt síðastliðin ár en í fyrra sögðust um 40% unglinga í 10. bekk á Íslandi finna fyrir depurð vikulega eða oftar.

Í eftirfarandi rannsókn tóku nemendur þátt í hóptímum sem byggðu á öndunaræfingum, Yoga stellingum og félagslegum æfingum. Eftir 8 vikur var andleg líðan nemenda töluvert betri en nemendur sýndu m.a. minni einkenni þunglyndis og streitu.

Rannsóknin er ein af fjölmörgum sem sýna jákvæð áhrif öndunaræfinga á andlega heilsu og líðan. Við hjá Heilsuvitund hvetjum alla til þess að prófa öndunaræfingar en hægt er að nálgast margar slíkar á netinu, m.a. á Youtube.

When college students learn specific techniques for managing stress and anxiety, their well-being improves across a range of measures and leads to better mental health, a new Yale study finds.

30/06/2020

Síðastliðna nótt samþykkti Alþingi að sálfræðiþjónusta yrði felld undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga. Kostnaður við sálfræðiþjónustu verður því lægri fyrir þá sem þurfa á slíkri þjónustu að halda.

Við hjá Heilsuvitund fögnum þessum fréttum enda um gríðarlega mikilvægt skref að ræða til þess að tryggja öllum aðgengi að þjónustunni!

Á veirutímum skiptir máli að halda sér virkum en rannsóknir sýna að hófleg hreyfing minnkar líkur á sýkingu í öndunarveg...
07/05/2020

Á veirutímum skiptir máli að halda sér virkum en rannsóknir sýna að hófleg hreyfing minnkar líkur á sýkingu í öndunarveg um 40-50%. Einstaklingar sem hreyfa sig hóflega 5-7 sinnum í viku verða sjaldnar veikir og taka mun færri veikindadaga en aðrir. Fá lyf geta sýnt fram á jafn jákvæð áhrif á ónæmiskerfið og hófleg hreyfing hefur. Hins vegar geta erfiðar æfingar sem standa í langan tíma (60 mín+) bælt ónæmiskerfið tímabundið og þar með margfaldað líkur á veikindum.
https://heilsuvitund.is/2020/06/08/hreyfing-styrkir-onaemiskerfid/

Kæru skjólstæðingar.Stofan hefur nú opnað að nýju. Tímapantanir eru opnar í síma 588-4848 eða á heilsuvitund@heilsuvitun...
05/05/2020

Kæru skjólstæðingar.
Stofan hefur nú opnað að nýju.
Tímapantanir eru opnar í síma 588-4848 eða á [email protected]
Hlökkum til að sjá ykkur.

Sjúkraþjálfarar Heilsuvitundar, Vébjörn og Sigurjón, taka vel á móti þér í Skeifunni 19. Stutt bið og persónuleg þjónust...
24/01/2020

Sjúkraþjálfarar Heilsuvitundar, Vébjörn og Sigurjón, taka vel á móti þér í Skeifunni 19. Stutt bið og persónuleg þjónusta. Endilega hringið í síma 588-4848 eða sendið tölvupóst á [email protected] fyrir tímapantanir.

Sigurjón GrétarssonSjúkraþjálfariSigurjón hefur starfað við umönnun hreyfihamlaðra ásamt því að starfa sem sjúkraþjálfar...
24/01/2020

Sigurjón Grétarsson
Sjúkraþjálfari

Sigurjón hefur starfað við umönnun hreyfihamlaðra ásamt því að starfa sem sjúkraþjálfari á öldrunarheimili, í heimahúsum og á Stjá sjúkraþjálfun. Sigurjón hefur einnig starfað hjá Sports Injury and Rehabilitation Clinic í London þar sem fer fram sérhæfð meðferð einstaklinga sem kljást við álagsmeiðsl frá stoðkerfi.

Menntun:
B.Sc. í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands, 2016.
M.Sc. í meðferð íþrótta og álagsmeiðsla frá LMU á Englandi, 2018.

[email protected]

Vébjörn FivelstadSjúkraþjálfariVébjörn hefur starfað við umönnun geð- og hreyfihamlaðra ásamt því að hafa starfað sem sj...
22/01/2020

Vébjörn Fivelstad
Sjúkraþjálfari

Vébjörn hefur starfað við umönnun geð- og hreyfihamlaðra ásamt því að hafa starfað sem sjúkraþjálfari á Bjargi endurhæfingu á Akureyri. Þaðan hefur hann reynslu af endurhæfingu barna, almennings og aldraðra.

Menntun:
B.Sc. í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands, 2016.
ÍAK einkaþjálfari.
Sérfræðingur í gerð áhættumats á vinnustöðum hvað varðar álag á hreyfi- og stoðkerfi.

[email protected]

Aðstaða sjúkraþjálfunar Heilsuvitundar
22/01/2020

Aðstaða sjúkraþjálfunar Heilsuvitundar

Address


Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545884848

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heilsuvitund posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Heilsuvitund:

Shortcuts

  • Want your business to be the top-listed health & beauty business?

Share