Ekki gefast upp

  • Home
  • Ekki gefast upp
Directions Website Contact the business

Ekki gefast upp Ekki gefast upp! er líkamsrækt fyrir börn og ungmenni sem glíma við vanlíðan www.ekkigefastupp.is Okkar markmið er að vera sá vettfangur. Ekki Gefast Upp!

Til að hægt sé að stunda líkamsrækt reglulega er afar nauðsynlegt að hún sé skemmtileg. Okkar markmið er að skapa gleði með hreyfingunni í umhverfi þarsem við reynum að lágmarka alla utanaðkomandi þætti sem geta verið kvíðavaldandi eða skapað neikvæða upplifun af hreyfingunni. Við aðlögum æfinguna af hverjum og einum en mikið er lagt upp úr persónulegri nálgun.
Því ef áhuginn á því að hreyfa sig er til staðar eiga allir eiga það skilið að fá að upplifa gleðina sem henni getur fylgt. hefur verið starfandi síðan 2016 og er hugarfóstur þeirra Stebba og Sigga sem byrjuðu með námskeið um sumarið. Í dag erum við 5 sem komum að þessu en þau Sunna Rut, Magnús og Alexandra Sif ásamt þeim Stebba og Sigga hafa öll dýrmæta reynslu á að starfa með ungu fólki sem glímir við andlega vanlíðan.
Á námskeiðinu "Ekki gefast upp" er farið yfir grundvallaratriði líkamsræktar ásamt ávinning hennar á andlega líðan fyrir ungmenni á aldrinum 14-18 ára. Rannsóknir sýna fram á jákvæð tengsl milli hreyfingar og andlegrar líðan. Aukin vanlíðan getur þó haft áhrif á löngun og getu til að hreyfa sig og erfitt getur reynst að finna sig í hefðbundinni líkamsrækt. „Ekki gefast upp!“ er námskeið þar sem tekið er tillit til þess en æft er í lokuðum sal á lágmarks álagstíma stöðvarinnar ásamt því að stuðst er við einstaklingsmiðað æfingakerfi. Lagt er upp úr persónulegri nálgun og eftirfylgni þar sem markmiðið er að stuðla að jákvæðri upplifun iðkandans. Fyrir ungmenni á aldrinum 14-18 ára sem glíma við andlega vanlíðan s.s. þunglyndi, félagsfælni og kvíða.

Umfjöllun um Stebba og Ekki gefast upp í helgarblaði Morgunblaðsins 💚
31/08/2026

Umfjöllun um Stebba og Ekki gefast upp í helgarblaði Morgunblaðsins 💚

Stefán og Berglind kíktu í spjall í Bítið á Bylgjunni í morgun og sögðu frá Ekki Gefast Upp
12/08/2026

Stefán og Berglind kíktu í spjall í Bítið á Bylgjunni í morgun og sögðu frá Ekki Gefast Upp

Stefán Ólafur Stefánsson, stofnandi Ekki gefast upp og Berglind Eva Eggertsdóttir, þjálfari ræddu við okkur um líkamsrækt fyrir ungmenni með kvíða og þunglyndi.

09/08/2026

Ætlar þú að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu 22. ágúst?

Ekki Gefast Upp leitar að hlaupurum sem vilja hlaupa fyrir krakkana sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþróttastarfi og hjálpa okkur að hjálpa þeim að finna gleðina í íþróttum.

Ekki gefast upp hefur síðan 2016 fengið að fylgja yfir 600 börnum og ungmennum sem glíma við kvíða og þunglyndi — krökkum sem höfðu kannski gefist upp á því að hreyfa sig, en fundu gleðina aftur í öruggu umhverfi, án spegla og án pressu. Á þeirra forsendum, á þeirra hraða.
Ef þú ert til í að hlaupa fyrir okkur þann 22. ágúst verðum við þér gríðarlega þakklát en hver einasta króna skiptir gríðarlega miklu máli í starfi sem okkar. Kynntu þér starfið okkar a www.ekkigefastupp.is

Líkamsrækt fyrir börn og ungmenni sem glíma við kvíða og þunglyndi 💚-Foreldrar fá 50% afslátt af 3 mánaða korti í Heilsu...
08/08/2026

Líkamsrækt fyrir börn og ungmenni sem glíma við kvíða og þunglyndi 💚-Foreldrar fá 50% afslátt af 3 mánaða korti í Heilsuklasanum!

Skráning á https://www.abler.io/shop/ekkigefastupp?country=IS&program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NjI5NTM=

Ekki Gefast Upp! er líkamsrækt fyrir börn og ungmenni á aldrinum 14–20 ára sem glíma við kvíða, félagsfælni eða aðra andlega vanlíðan. Fyrir börn og ungmenni sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþrótta- og tómstundastarfi.
Við höfum starfað í tíu ár og tekið á móti yfir 600 iðkendum. 🙌

www.ekkigefastupp.is

Ætlar þú að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu 22. ágúst?Ekki Gefast Upp leitar að hlaupurum sem vilja hlaupa fyrir krakkana...
16/07/2026

Ætlar þú að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu 22. ágúst?

Ekki Gefast Upp leitar að hlaupurum sem vilja hlaupa fyrir krakkana sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþróttastarfi og hjálpa okkur að halda úti okkar starfi.
Ekki gefast upp hefur síðan 2016 fengið að fylgja yfir 600 börnum og ungmennum sem glíma við kvíða og þunglyndi — krökkum sem höfðu kannski gefist upp á því að hreyfa sig, en fundu gleðina aftur í öruggu umhverfi, án spegla og án pressu. Á þeirra forsendum, á þeirra hraða.

Ef þú ert til í að hlaupa fyrir okkur þann 22. ágúst verðum við þér gríðarlega þakklát en hægt er að skrá sig á hlaupastyrkur.is

Við höfum verið starfandi síðan 2016 og erum hópur af átta einstaklingum sem brennum aðalega fyrir tvennt. Heilsurækt og að efla andlega líðan ungs fólks. Það eiga allir skilið að fá að upplifa þau jákvæðu áhrif sem að hreyfing getur gert fyrir andlega líðan. Fyrir börn o...

Líkamsrækt fyrir börn og ungmenni sem glíma við kvíða og þunglyndi 💚Ekki Gefast Upp! er líkamsrækt fyrir börn og ungmenn...
14/07/2026

Líkamsrækt fyrir börn og ungmenni sem glíma við kvíða og þunglyndi 💚

Ekki Gefast Upp! er líkamsrækt fyrir börn og ungmenni á aldrinum 12–20 ára sem glíma við kvíða, félagsfælni eða aðra andlega vanlíðan. Fyrir börn og ungmenni sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþrótta- og tómstundastarfi.

Við höfum starfað í tíu ár og tekið á móti yfir 600 iðkendum. 🙌

Með forskráningu færðu:
✅ Prufutíma fyrir barnið
✅ Möguleika á að taka vin eða vinkonu með
✅ 50% afslátt fyrir foreldri af 3 mánaða korti hjá Heilsuklasanum

Forskráning er án allrar skuldbindingar

👉 Skráning fer fram á www.ekkigefastupp.is

,,Barnið mitt hafði ekki mætt í skólaleikfimi í tvö ár áður en það kom til ykkar — núna fer hann sjálfur í ræktina."Þett...
24/06/2026

,,Barnið mitt hafði ekki mætt í skólaleikfimi í tvö ár áður en það kom til ykkar — núna fer hann sjálfur í ræktina."
Þetta sagði móðir 15 ára stráks við okkur í vetur en því miður er þetta of algengt. Hópurinn er of stór eða of mikil áhersla lögð á keppni.

Hjá Ekki Gefast Upp! æfa allir á eigin forsendum og við leggjum áherslu á einstaklingsmiða þjálfun.

Forskráðu þig núna og fáðu:

✅ Prufutíma fyrir barnið þitt — án greiðslu, án skuldbindingar
✅ Barnið má taka vin eða vinkonu með sér í fyrstu skiptin
✅ 50% afslátt af 3 mánaða korti í tækjasalinn hjá Heilsuklasanum — fyrir þig sem foreldri — ef þú vilt æfa á meðan

Engin greiðsla eða önnur skuldbinding við. Bara að skrá sig ef það er áhugi á að prófa.

👉

Líkamsrækt og geðrækt fyrir ungmenni sem glíma við kvíða, félagsfælni eða hafa ekki fundið sig í hefðbundnum íþróttum. Litlir hópar, öruggt rými. Skráðu á forgangslista.

,,Barnið mitt hafði ekki mætt í skólaleikfimi í tvö ár áður en það kom til ykkar, núna fer hann sjálfur í ræktina”Þetta ...
03/06/2026

,,Barnið mitt hafði ekki mætt í skólaleikfimi í tvö ár áður en það kom til ykkar, núna fer hann sjálfur í ræktina”

Þetta sagði móðir 15 ára stráks við okkur í vetur en því miður heyrum við oft eitthvað svipað þegar kemur að skipulögðu íþrótta og tómstundastarfi. Hópurinn of stór, pressa á að þurfa alltaf að mæta eða of mikil áhersla lögð á keppni.

Hjá Ekki Gefast Upp eru tveir möguleikar næsta haust:
— Líkamsrækt í litlum hóp. Einstaklingsmiðað. Engir speglar, engin keppni.
—Skapandi stund — opið rými þar sem áhersla er lögð á sköpun og njóta stundarinnar. Ungmenni geta prófað hljóðfæri, teiknað, skrifað eða annað sem vekur áhugann undir handleiðslu kennara.

Nú er opið fyrir forskráningu fyrir haustið— án allrar skuldbindingar. Barnið þitt fær prufutíma og má taka vin eða vinkonu með sér í fyrsta skipti.
Skráning er hafin á

Til að hægt sé að stunda líkamsrækt reglulega er afar nauðsynlegt að hún sé skemmtileg. Okkar markmið er að skapa gleði með hreyfingunni í umhverfi þarsem við reynum að lágmarka alla utanaðkomandi þætti sem geta verið kvíðavaldandi eða skapað neikvæða upplifun af hreyfin...

20/03/2026

Tónlist og söngur hjá Ekki gefast upp 🎶

🙋🏼Fyrir ungmenni (13–18 ára)
📍Staðsetning: Hvassaleiti 56–58
📱Skráning .io

Við ætlum að læra:
Söngur, tónlist og sköpun
Öndun og teygjur fyrir söng
Grunnatriði í tónfræði
Hlustun og eyrnaþjálfun
Kynning á mismunandi tónlistarstílum

✨Þátttaka á þínum forsendum.
✨Engin reynsla nauðsynleg.

Leiðbeinendur:

🔗 Sjáðu allar upplýsingar og fleiri námskeið á ekkigefastupp.is

,,Þá höfum við stundum fengið til okkar unglinga sem eru í ofþyngd samkvæmt einhverjum BMI staðli og halda að þau séu ek...
13/02/2026

,,Þá höfum við stundum fengið til okkar unglinga sem eru í ofþyngd samkvæmt einhverjum BMI staðli og halda að þau séu ekkert sterk því þau eru ekki með „sickpack“.
Það eru skilaboðin sem þau hafa fengið.“

Nýr samningur Ekki gefast upp! og Reykjavíkurborgar gerir félaginu kleift að auka enn frekar framboð sitt af námskeiðum.

Address


Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ekki gefast upp posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ekki gefast upp:

Shortcuts

  • Want your business to be the top-listed health & beauty business?

Share