20/10/2026
💚 Hvaða námskeið gæti verið rétta skrefið fyrir þig?
Fjögur námskeið eru að hefjast í Sjálfsrækt í byrjun nóvember. Hvort sem þig langar að verða sterkari, liðugri, draga úr spennu eða einfaldlega byrja að hugsa betur um þig, þá gæti eitt þeirra hentað þér.
🌿 Jóga vellíðan fyrir karla
Ertu stirður, finnur fyrir spennu í líkamanum eða langar einfaldlega að gefa þér tíma til að slaka á? Hér vinnum við með liðleika, mýkt, öndun og slökun. Þú þarft enga fyrri reynslu af jóga.
🌿 Liðleiki og styrkur fyrir stirða stráka
Viltu geta hreyft þig frjálsar, minnkað stirðleika og byggt upp styrk sem nýtist þér í daglegu lífi? Hér vinnum við markvisst með hreyfigetu, liðleika og styrk á þínum forsendum.
🌿 Byrjaðu hér
Langar þig að hugsa betur um þig en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja? Á þessu fjögurra vikna námskeiði færðu að kynnast Sjálfsrækt, prófa mismunandi tíma og finna hvaða hreyfing og slökun hentar þér best. Engin reynsla nauðsynleg.
🌿 Styrkur og uppbygging – að treysta líkamanum á ný
Fyrir konur sem vilja byggja sig upp á öruggan hátt, hvort sem þær eru að byrja, koma aftur eftir hlé eða vilja öðlast meira traust á eigin líkama. Aðeins 8 konur í hópnum, persónuleg leiðsögn og sérhæfður þjálfari sem hjálpar þér að byggja upp styrk, hreyfigetu og líkamsvitund.
Það sem öll námskeiðin eiga sameiginlegt er Sjálfsræktarleiðin. Litlir hópar, reyndir kennarar, persónuleg leiðsögn og umhverfi þar sem þú færð að mæta eins og þú ert. 💚
Kynntu þér námskeiðin og tryggðu þér pláss á sjalfsraekt.is