Samkennd Heilsusetur

Directions Website

Samkennd Heilsusetur Fagaðilar Samkenndar hafa góða þekkingu á sínu sviði og bjóða upp á fjölbreytta þjónustu Miðast val á meðferðarformi eftir þörfum og vanda skjólstæðings.

Hjá okkur starfa atferlisfræðingur, faglegur handleiðari, heilari, félagsráðgjafi, fjölskyldu- og pararáðgjafar, markþjálfar, sálfræðingar, sálmeðferðrafræðingur, jógakennarar, heilari, nuddari, prestur ofl. Sú þjónusta sem boðið er upp á er m.a einstaklingsviðtöl, fjölskyldu-, para- og hjónaráðgjöf, hópmeðferðir, námskeið, fyrirlestrar, hugleiðslur, slökun, dáleiðsla, og Yoga námskeið, bandvefslosunartímar, mjúk leikfimi og paranudd námskeið. Undir hatti Samkenndar er fjölbreytt þjónusta vel menntaðra fagaðila og sérfræðinga. Hver fagaðili byggir meðferðir sínar á árangursmiðuðum og gagnreyndum aðferðum út frá sinni fræðigrein. Við sinnum bæði einstaklingum, pörum, fyrirtækjum og hópum. Hægt að sækja þjónustu okkar að Tunguhálsi 19 og í gegnum fjar-þjónustu ef það hentar betur. Hægt er að nálgast meiri upplýsingar í gegnum netfangið [email protected] og inn á vefsíðunni samkennd.is

30/10/2026

Sunnudaginn 1.nóvember kl 13:00-15:00 í Samkennd Heilsusetri. Nokkur laus pláss.
Svefn og sjálfsmildi í skammdeginu er fræðslu- og jóga nidra viðburður með Ingu Rún Björnsdóttur sálfræðingi, svefnráðgjafa og jógakennara.

➡️ Skráning á www.inga.run

✨ Við byrjum viðburðinn á stuttri hugleiðslu og ilmandi tebolla eða kakóbolla.

✨ Svo tekur við fræðsla um hvernig við getum hlúð að góðum svefni og andlegri heilsu í skammdeginu. Við skoðum hvernig skammdegið og fleiri þættir geta haft áhrif á svefn, orku og líðan og förum yfir hagnýt ráð til að styðja við svefnvenjur og efla vellíðan yfir dimmustu mánuði ársins. Hjá mörgum eykst streita þegar jólin nálgast og verkefnum og væntingum fjölgar. Við skoðum hvernig streita hefur áhrif á líkama og huga og förum yfir hagnýt ráð til að draga úr streitu og skapa jafnvægi.

✨ Að fræðslu lokinni tekur við löng nærandi jóga nidra slökun þar sem áhersla er á sjálfsmildi, streitulosun og djúpa slökun.

Leiðbeinandi: Inga Rún Björnsdóttir sálfræðingur, svefnráðgjafi og jóga nidra kennari.

Nokkur laus pláss. Skráning á www.inga.run

🌙 Svefn og andleg heilsa eru nátengd.Góður svefn styður við tilfinningastjórnun, hjálpar okkur að takast á við streitu o...
25/10/2026

🌙 Svefn og andleg heilsa eru nátengd.

Góður svefn styður við tilfinningastjórnun, hjálpar okkur að takast á við streitu og getur haft jákvæð áhrif á andlega líðan.

💛 Að hlúa vel að svefninum er því líka leið til að hlúa vel að andlegri heilsu.

Hjá Samkennd Heilsusetri starfa sálfræðingar með mikla reynslu í greiningu og meðferð svefnvanda.

Svefn er ein af grunnstoðum andlegrar og líkamlegrar heilsu. Hlúum vel að svefninum í vetur. Til dæmis geta dagljósalamp...
25/10/2026

Svefn er ein af grunnstoðum andlegrar og líkamlegrar heilsu. Hlúum vel að svefninum í vetur. Til dæmis geta dagljósalampar verið gagnlegir í mesta skammdeginu og hjálpað til við að styrkja dægursveiflu líkamans 💤😴💜

25/10/2026

Að flýja ekki tilfinningarnar💚

24/10/2026

Fíkn, endurrtekin hegðun sem veldur þér skaða á einhvern hátt, byrjar sem leið til að draga úr vanlíðan en eignast eigið líf og fer meir og minna að stjórna þínu lífi (Hrafnheiður).

19/10/2026

Konur 40+ finna oft að allt í einu mýkist mallinn þrátt fyrir ekkert breytist í mataræði/ hreyfingu.

Rannsóknir sýna að lækkandi estrógen hækkar hlutfall innri kviðfitu úr 7%í 23% bara við að detta á breytó.

Eykur líkur á hjartasjúkdómum, fitulifur, insúlínviðnám, bólgumyndun.

En við getum gert allskonar til að sporna við og virkja kviðfitu sem bensín í átök

✅ Lotuþjálfun: stuttar/snarpar 20-30 mín þolæfingar. 30-90 sek spretti + hvíld í 60-180 sek.
Þú vilt sjúga puttann í fósturstellingu eftir slík átök.
Rannsókn sem skoðaði Þolæfingar á hárri ákefð eftir tíðahvörf sýndi lægra hlutfall líkamsfitu, minni fitu kringum líffæri, meiri vöðvamassa, betri virkni í hjarta-og æðakerfi.

✅ Styrktarþjálfun: örvar nýtingu á kviðfitu í átök og kolvetni fara í áfyllingu í vöðvum og lifur en ekki lagerinn kringum æxlunarfæri. Líkaminn verður betri í nýtingu insúlíns = jafnari blóðsykur

✅ TREFJAR. Heilbrigð þarmaflóra stjórnar estrógeni í gegnum estrobolome. Þarmaflóran breytist á breytingaskeiði sem hefur áhrif á þyngd, bólgumyndun, skap. Miðaðu við að gúlla í þig 25-30 g trefjum /dag. T.d skutla psyllium Husk yfir grautinn.

✅ EKKI æfa á fastandi og EKKI fasta eftir æfingu.
Ef þú nærirst ekki nægilega fyrir æfingu geturðu ekki tekið á því af þeirri ákefð sem þarf til að byggja vöðva/ bæta þol.
Þegar heilinn skynjar ekki nægilegt magn af hitaeiningum, sérstaklega kolvetnum, dregst úr framleiðslu Kisspeptín taugapeptíð sem stýrir blóðsykri, matarlyst, og samsetningu vöða/ fitu. Að fasta eftir æfingu erum við sósuð í kortisóli sem hvetur til frekari fitusöfnunar á kvið. 30-40g prótin + 30-60g kolvetni 30-45 mín eftir æfingu

✅Prótín í hverri máltíð: allra besti vinur á breytó en með auknum aldri þurfa bæði kyn meira prótín: 1.5-2 g per kg líkamsþyngd/ dag. Prótín passar vöðvana og er mest mettandi orkuefnið sem dregur úr skápaskrölti á kvöldin

✅Omega-3 er bólgulækkandi en kviðfita eykur bólgumyndun. Miðaðu við 1 g/ dag.

NOW Foods Iceland

Aukanámskeið Bestar á breytó verður 8. Nóvember kl 13-15 í Samkennd Heilsusetur

Ný vika er handan við hornið.Gefðu þér smá stund til að líta til baka.Hvað gaf þér orku þessa vikuna?Hvað tók orku frá þ...
18/10/2026

Ný vika er handan við hornið.

Gefðu þér smá stund til að líta til baka.

Hvað gaf þér orku þessa vikuna?
Hvað tók orku frá þér?
Hvað viltu taka með þér inn í nýja viku, og hverju má sleppa?

—

A new week is around the corner.

Take a moment to look back.

What gave you energy this week?
What drained it?
What do you want to carry into the new week, and what can you leave behind?

Farðu út í tíu mínútur í dag, jafnvel þótt veðrið sé ekki upp á sitt besta.Taktu eftir því sem þú sérð, heyrir og finnur...
17/10/2026

Farðu út í tíu mínútur í dag, jafnvel þótt veðrið sé ekki upp á sitt besta.

Taktu eftir því sem þú sérð, heyrir og finnur. Kalda loftið á kinnunum. Hljóðið í vindinum. Litina í haustlaufunum.

Náttúran þarf ekkert frá þér. Þú mátt bara vera.

—

Step outside for ten minutes today, even if the weather isn't at its best.

Notice what you see, hear and feel. The cold air on your cheeks. The sound of the wind. The colours of the autumn leaves.

Nature needs nothing from you. You can simply be.

Address

Tunguhálsi 19
Reykjavík
110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samkennd Heilsusetur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Nearby health & beauty businesses