Mistur

Directions Website Contact the business

Mistur Mistur er hæglætisverslun fyrir þá sem velja umhverfisvæna og heilsusamlega valkosti, fyrir heimili, huga og heilsu. Við erum á Stórhöfða 33.

Opið alla virka daga frá kl. 11-17 og laugardaga 11-14 Mistur hæglætisverslun býður uppá umhverfisvæna valkosti, bætiefni og snyrtivörur og selur eingöngu hágæða vörur sem hjálpa þér að draga úr sóun og lifa þínu besta lífi. Verslun okkar á Stórhöfða 33 er opin alla virka daga frá kl. 11-17

Við höfum vaxið upp frá því að endurvinna pappír og brettatimbur í minnis- gestabækur og myndir í að bjóða nærri allt sem getur komið í veg fyrir einnota og/eða plastvörur ásamt því að bjóða upp á breitt úrval af bætiefnum og snyrtivörum. Við leggjum metnað í að vörurnar okkar séu úr náttúrulegum hráefnum, framleiddar með mannsæmandi hætti og án skaðlegra efna fyrir menn, dýr og umhverfi.

Skv. beiðnum höfum við nú bætt við í jurtalínuna okkar, vallhumli, ylliberjum- og blómum ásamt rauðsmára, gullhrís og fl...
31/10/2026

Skv. beiðnum höfum við nú bætt við í jurtalínuna okkar, vallhumli, ylliberjum- og blómum ásamt rauðsmára, gullhrís og fleiri góðum jurtum/kryddum.

Allt komið fram í verslun, í stafrófsröð :) og væntanlegt á vefinn - líka í stafrófsröð
.og opið í dag laugardag frá kl. 11-14 og allan sólahringinn á .is

30/10/2026

20% afsláttur af öllu í Nornahorninu í dag, föstudaginn 30.október bæði í verslun og á vef til miðnættis í kvöld.

Býflugnafrjókorn - stækka þau virkilega brjóstin? Þessari spurningu og mörgum öðrum um býflugnafrjókorn svörum við í fær...
27/10/2026

Býflugnafrjókorn - stækka þau virkilega brjóstin?

Þessari spurningu og mörgum öðrum um býflugnafrjókorn svörum við í færslu sem við birtum síðasta sunnudag á síðunni okkar.
..og þar sem þessi ágæti miðill leyfir okkur ekki að birta hlekk í dag þá er best að sveifla sér yfir á misturpunkturis til að lesa og næla sér í fróðleiksmola í dag.....og kannski skrá sig á póstlistann okkar í leiðinni.

Þrír fyrir tvo af öllu grænu tei í pokum frá Moya (4 tegundir)🌿Genmaicha sem er hrísgrjónate og gott með mat og hjálpar ...
26/10/2026

Þrír fyrir tvo af öllu grænu tei í pokum frá Moya (4 tegundir)

🌿Genmaicha sem er hrísgrjónate og gott með mat og hjálpar meltingunni
🌿Senscha sem er mest drukkið í Japan og heimsfrægt.
🌿Kukicha sem er gott kvöldte þar sem það inniheldur lítið koffín og er líka gott kaldbruggað.
🌿Hojicha sem er líka gott kvöldte, ristað og með litlu koffíni.

Þú finnur þau öll á bls. 3 undir Moya á síðunni okkar og að sjálfsögðu hjá okkur á Stórhöfða 33 þar sem er opið frá kl. 11-17 alla virka daga.

Kvennafrídagurinn í dag, 24. október.En það er nú ekki aldeilis þannig hjá okkur í litla kvennafyrirtækinu Mistur þar se...
24/10/2026

Kvennafrídagurinn í dag, 24. október.

En það er nú ekki aldeilis þannig hjá okkur í litla kvennafyrirtækinu Mistur þar sem allar hendur eru kallaðar á dekk þegar mikið liggur við, m.a.s á laugardegi....OG það á sjálfum kvennafrídeginum.

Önnur okkar ætlar að leggja land undir fót og fara að pakka nýjum jurtum sem voru að koma í hús, m.a. ylliberjum og -blómum, vallhumli, gullhrís og rauðsmára svo eitthvað sé nefnt.....á meðan hin stendur laugardagsvaktina frá kl. 11-14, græjar miða á pokana fyrir allar nýju jurtirnar og nær vonandi að setja eitthvað af öllum þeim nýju vörum sem eru komnar í hús á vefinn (ótrúleg bjartsýni samt :)) á milli þess sem hún spjallar við stórskemmtilega viðskiptavini sem gera sér ferð til okkar á Stórhöfða.

Og þessu öllu tengt látum við hér fylgja mynd af einni helstu kvennajurtinni okkar, Maríustakk, en nafnið vísar í Maríu mey.

Helstu eiginleikar Maríustakks:
💚er talin hjálpa til við að koma reglu á tíðahringinn
💚er þekkt fyrir að draga úr miklum blæðingum, sérstaklega í upphafi breytingaskeiðs
💚hefur verkja og krampastillandi áhrif á túrverki
💚er gjarnan notuð síðustu mánuði meðgöngu og eftir fæðingu til að styrkja legvöðvann svona eins og hindberjalauf (sem við eigum að sjálfsögðu líka)

já, þannig er það nú

Vúúúúps! Gleymdum að smella þessum koparglösum á vefinn um daginn um leið og flöskunum.....Því var snarlega kippt í liði...
22/10/2026

Vúúúúps!

Gleymdum að smella þessum koparglösum á vefinn um daginn um leið og flöskunum.....

Því var snarlega kippt í liðinn í dag og þau blasa nú við á forsíðunni á mistur.is ef þú vilt panta þér eitt, tvö, þrjú eða fleiri

En af koparflöskunum er það helst að frétta að það eru bara fjórar eftir....

Hefurðu prófað þvottaefnisstrimla?Strip wash eru til bæði með og án ilms, fer ekkert fyrir þeim og ekkert ,,subb" fylgir...
13/10/2026

Hefurðu prófað þvottaefnisstrimla?

Strip wash eru til bæði með og án ilms, fer ekkert fyrir þeim og ekkert ,,subb" fylgir þeim. Og svo er þetta svo einfalt að það hálfa væri nóg. Þú setur ýmist heila eða hálfa örk í tromluna, fer eftir magni eða óhreinindum, óhreina tauið þar á eftir og kveikir á vélinni.
24 arkir í pakka sem auðvelt er að taka í tvennt eftir þar til gerðri rifrönd.

Vissirðu að hjá okkur færðu ýmislegt sem er erfitt að finna annarsstaðar?T.d.Spírulínuduft, örvarrótarduft, mulin hörfræ...
12/10/2026

Vissirðu að hjá okkur færðu ýmislegt sem er erfitt að finna annarsstaðar?

T.d.
Spírulínuduft, örvarrótarduft, mulin hörfræ, hveitiklíð, perlukúskús, vínsteinslyftiduft og rúgflögur svo eitthvað sé nefnt.

Opið í dag laugardag frá kl.11-14 og tilvalið að renna við og smakka hráa hunangið frá Bee & You.
10/10/2026

Opið í dag laugardag frá kl.11-14 og tilvalið að renna við og smakka hráa hunangið frá Bee & You.

Address

Stórhöfða 33
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 11:00 - 17:00
Tuesday 11:00 - 17:00
Wednesday 11:00 - 17:00
Thursday 11:00 - 17:00
Friday 11:00 - 17:00
Saturday 11:00 - 14:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Mistur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Mistur:

Shortcuts

Share

Nearby health & beauty businesses